Marokkó um páska 2008

þriðjudagur, 6. maí 2008

Haldið heim

23. mars Páskadagur

Risið úr rekkju og búist til brottfarar. Hemmi tróð okkur og farangrinum í síðasta sinn í litlu óþægilegu rútuna okkar. Ókum á flugvöllinn sem er rétt utan við Marrakech. Hann virðist vera enn í byggingu enda er Marrakech í örum vexti sem ferðamannaborg. Kvöddum Hemma með virktum fyrir utan en Yahya lóðsaði okkur að innritunarborðinu. Þar innrituðumst við til London með millilendingu í Casablanca. Vel gekk að komast í gegn, okkur konunum fannst ágætt að það var sérstök konuröð, mun styttri og hraðvirkari, því ekki gengur að karlar séu að þukla á kvenfólki í múslímaríki. Að sjálfsögðu var orðin seinkun á fluginu, við vorum nú í Afríku. En við vorum bara róleg enda nægur tími milli fluga á Heathrow. Vélin tók rétt á loft í 25 mínútur milli Marrakech og Casablanca. Þar biðum við í vélinni eftir að hún fylltist af ferðalöngum. Ferðin gekk vel og við fórum milli flugstöðva á Heathrow án vandkvæða. En þá upphófst vesenið. Það kom í ljós að Júlí og Þröstur voru bókuð í flug morguninn eftir og Kjartan, Unnur og Sævar áttu bókað flug heim 23. maí en ekki 23. mars. Og þau höfðu öll gert sér ferð á söluskrifstofu Flugleiða til að kaupa nú örugglega rétt flugfar. Urðu nú allir mjög áhyggjufullir því ekki vildum við týna þessum ágætu félögum okkar svona rétt áður en við kæmumst heim. En á flugstöðvum er ekkert val, við sem vorum bókuð í vélina fórum í gegnum eftirlit en félagarnir ætluðu að reyna að komast í laus sæti ef einhver byðust. Úr rættist því að síðust um borð voru félagar okkar því 14 manna hópur hafði ekki mætt í flugið. Sjálfsagt eitthvað vesalings fólks sem heldur að það eigi flug 23. maí. Flugvélin var full af kátum Íslendingum að koma heim úr páskafríi og við pössuðum vel í þann hóp. Í Keflavík knúsuðumst við öll og þökkuðum hvort öðru fyrir frábært frí og héldum síðan hver til síns heima. Lentum í biðröð vegna umferðarslyss á Reykjanesbraut. Þá mundum við eftir því að þó við yrðum oft vitni að glæfralegum akstri í Marokkó sáum við aldrei umferðarslys. Líka að við ferðuðumst í viku í Afríku og allar ferðaáætlanir stóðust fullkomlega, það voru viðskipti okkar við Íslendinga sem ekki stóðust. Þessi ferð var mjög fjölbreytt og góð kynning á mismunandi hliðum Marokkó. En hún var ekki slökunarfrí, maður var að allan tímann. Þetta var svona kynning á hvað mann langar til að skoða betur því þegar ég les þessi skrif mín yfir þá sé ég að við náðum að upplifa alveg ótrúlega mikið á einni viku.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home