Marrakech hér komum við!
21. mars Föstudagurinn langi
Rumskaði við bænaköllin í morgunsárið en velti mér samviskulaust á hina hliðina. Fór samt fljótlega á lappir og niður í morgunmat. Veitti því athygli að hér vinna ungar stúlkur við framreiðslu, eitthvað sem sést ekki úti á landsbyggðinni. Fengum venjulega fransbrauðið og kaffið. Þröstur var lasinn og Svava fór í apótek og keypti handa honum Biafra-blöndu til að hressa hann við. Það tókst nú ekki nema svona og svona. Hittum borgarleiðsögumann, Abdullah, sem lóðsaði okkur um miðborgina. Á honum kjaftaði hver tuska og sagði hann okkur margt og mikið um sögu Marrakech. Miðpunktur borgarinnar er torgið Djemma el Fna, sem við snerum yfir á Hausaskeljastað því nafnið er dregið af þeim sið að setja hausa óvina ríkisins upp á prik á torginu. Á torginu er margt að sjá hvort sem er að degi til eða á kvöldin. Þarna má sjá snákatemjara, menn með apaketti og alls konar tónlistaratriði. Fjöldinn allur af sölubásum fyllir torgið, flestir með annað hvort mat eða drykk. Leiðsögumaðurinn okkar dró hópinn með sér inn á markaðinn.
Markaðurinn er völundarhús úr þröngum götum fullum af alls konar verslunum og fólki. Við fengum að stoppa í hefðbundnu jurtaapóteki. Þar voru okkur kynnt alls konar jurtalyf og snyrtivörur og sumir fengu herðanudd Minnti andrúmsloftið þó nokkuð á plastdollukynningar á Íslandi. En flestir keyptu sér eitthvað, hvort sem það voru kryddblöndur, snyrtivörur eða undralyf. Að kynningunni lokinni var skoðunarferðinni haldið áfram og heimsóttum við kóranskóla og borgarminjasafnið í gamalli höll. Enduðum á kebab stað og keyptum okkur hádegisverð. Settumst upp á svalir þar sem við höfðum útsýn yfir mannmergðina á torginu. Að máltíðinni lokinni fengum við frjálsan tíma til kl. tvö til að skoða okkur um. Hittumst svo aftur við rútuna okkar og lögðum af stað til Essaouira. Essaouira er ferðamannabær á strönd Atlantshafsins. Bærinn er vinsæll ferðamannastaður og mjög notalegur staður til að heimsækja. Í gamla miðbænum er bílaumferð bönnuð svo það er mjög gaman að rölta um göturnar. Andrúmsloftið er afslappað og sölumennskunni í hóf stillt.
Bærinn er miðstöð útskurðarmenningar í Marokkó. Meðfram ströndinni er mikið ræktað af lífvið eða Thuju. Barrtré sem gefur mjög fallegan harðvið. Þarna er hægt að kaupa fallega útskorna muni á mjög hagstæðu verði. Um kvöldið fórum við á veitingastað við ströndina. Þar var hægt að fá lambakótelettur og vín með matnum. Nutum veitinganna og fórum svo upp á efri hæðina þar sem var bar með hávaðasamri, vestrænni tónlist. Skemmtilegast var að fara út á svalir og horfa á fullt tunglið bera yfir hafflötinn. Héldum heim um dimmar, mannlausar götur. Næturlíf er í algeru lágmarki á þessum slóðum. Við systur vorum svo heppnar að vera í herbergi sem sneri út að götunni yfir innganginum í hótelið. Og það var frekar hlóðbært, svo mannaferðir fóru ekki framhjá okkur um nóttina.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home