Marokkó um páska 2008

mánudagur, 31. mars 2008

Flugvélar fram og til baka

Sunnudagur 16. mars 2008 Pálmasunnudagur.


Það voru kátir ferðafélagar sem hittust við innritunarborðið á Terminal 2 á Heathrow til að skrá sig inn í flugvélina til Casablanca. Þar komu 9 félagar beint frá Íslandi búnir að fljúga með Flugleiðum til London um morguninn og síðan komu 6 manns sem búnir voru að skemmta sér í Lundúnum í nokkra daga. Við vorum snemma á ferðinni, það var rétt byrjað að skrá í vélina þegar við vorum öll komin. En Royal Air Moroc er ekki stundvísasta flugfélag í heimi og við biðum og biðum og ekki kom upp hlið. Það var ekki fyrr en Svava stillti sér upp við skjáinn og horfði á hann eitruðu augnaráði að loksins kom upp hliðið. Það var 20 mín fyrir auglýsta brottför svo nú höskuðum við okkur eftir göngum Heathrow-flugvallar. Allir drifu sig um borð í flugvélina og þar sátum við næstu 3 og hálfan tíma. Maturinn var frekar skrýtinn og íslendingum leist ekki öllum alveg á blikuna. Lentum í Casablanca um níuleytið um kvöldið, þar virðist vera safnað saman öllum flugvélum frá Evrópu og síðan flogið með fólk áfram á minni staðina, a.m.k. voru að fara flugvélar til flestra borga Marokkó þarna um kvöldið og fullt af fólki. Við fórum í flugvélina til Ouarzazate og við tók 50 mín flug yfir Atlas-fjöllin. Lentum eftir miðnættið, biðum í biðröð í gegnum vegabréfaskoðun. Þeir sem fyrstir komust í gegn voru búnir að finna töskurnar svo við drifum okkur öll saman í gegn. Þar hittum við leiðsögumanninn okkar Yahya og rútubílstjórann Hemma. Okkur var troðið í pínulitla rútu (Benz - sumum til mikils léttis) og Hemmi ók okkur að hótelinu þar sem við áttum að gista. Það var örstutt ferð svo við komumst fljótt á hótelið. Hótelið er samsett úr löngum ræmum af herbergjum í stórum garði. Skrítið að paufast þarna í myrkrinu og vita ekkert hvar maður var. En allir fengu herbergi með rúmi og baðherbergi. Verandi í nálægð við nátturuna örlaði aðeins á dýralífi á baðinu en við Svava drápum bara kakkalakkann, lokuðum baðherbergishurðinni og fórum að sofa. Enda klukkan að nálgast tvö og búið að ferðast mikið þennan dag.

1 Comments:

  • Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:12 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home