Ferð til Marokkó í mars 2008 - Ferðaáætlun

Dagur 1
16. mars Pálmasunnudagur
Flug frá Íslandi til London um morguninn
Flug frá London, Heathrow. Seinnipartinn verður flogið til Ouarzazate í Marokkó. Þar hittum við marokkóskan leiðsögumann sem verður með okkur alla ferðina.
Gisting á góðu hóteli um nóttina.
Dagur 2
17. mars
Daginn eftir verður haldið af stað í rútu suður eftir Draa dalnum. Í dalnum eru stórar pálmaplantekrur og falleg, lítil sveitaþorp. Skoðum okkur um á leiðinni en komum seinnipartinn í eyðimerkurbæinn Zagora. Zagora er við útjaðar eyðimerkurinnar og var til forna uppahafspunkturinn í ferðum flutningalestanna gegnum Sahara suður til Timbuktu. Þarna hittum við bedúína og úlfalda og fáum að upplifa alvöru eyðimörk því við fáum að fara á bak og ríða um 2 klst ferð út í eyðimörkina. Um nóttina verður gist í eyðimörkinni, annað hvort í tjaldi eða úti undir berum himni.
Svefnpokagisting.
Morgun- og kvöldverður.
Dagur 3
18. mars
Eftir morgunmat stígum við á bak úlföldunum og þeysum til baka að rútunni okkar. Höldum síðan til baka upp Draa dalinn að fornu virki, Ait Benhaddou, sem frægast er fyrir að hafa verið leikmynd í Hollywood kvikmyndum (t.d. Gladiator).
Gisting á þokkalegu hóteli.
Morgunverður.
Dagur 4
19.mars
Um morguninn gefst tími til að skoða sig um í virkinu Ait Behaddou og umhverfi þess áður en lagt verður af stað í átt að Atlas fjallgarðinum. Haldið verður í austurátt inn á milli fjallanna að fjallavirkinu og höllinni Telouet. Þar sátu konungar ættbálka fjallafólks sem um tíma réðu yfir stórum hluta Marokkó og á tímabili náði veldi þeirra alla leið norður til Frakklands. Núna er Teloulet í niðurníðslu en heillandi er að skoða borgina. Eftir skoðunarferðina verður ekið skamma hríð en síðan yfirgefum við rútuna og göngum í um klukkutíma að fjallaþorpi sem verður næturstaður okkar. Viðlegubúnaður verður fluttur á staðinn svo það er bara að njóta útsýnisins.
Gisting í fjallaskála.
Morgun- og kvöldverður.
Dagur 5
20. mars Skírdagur
Um morguninn er hægt að fá sér 3-4 klst gönguferð. Þá verður rölt milli þorpa í Thijhza dalnum, framhjá ökrum berbakvennanna með hæstu tinda Atlas fjallanna í baksýn. Einnig er hægt að taka morgunninn með ró og njóta útsýnisins við fjallaskálann. Eftir hádegismat verður gengið til baka niður að rútunni og haldið af stað norður yfir Atlas fjallgarðinn. Farið verður yfir hæsta skarðið í fjöllunum, Tizi´n Tichka (2260 m) til Marrakech. Útsýnið er stórfenglegt og hæstu tindarnir glæsilegir til að sjá. Um kvöldið er hægt að bregða sér á Djemma el Fna, miðpunkt Marrakech. Þar er markaður á daginn en á kvöldin mæta veitingasalar, loftfimleikamenn, slöngutemjarar og torgið breytist í einn alsherjar skemmtistað.
Gisting á góðu hóteli.
Morgunverður.
Dagur 6
21. mars Föstudagurinn langi
Um morguninn verður boðið upp á skoðunarferð um borgina. Þar verður litið á helstu sögustaði í borginni og endað á Djemma el Fna um hádegisbil. Þeir sem vilja skella sér beint í prúttið geta líka gert það. Markaðurinn í kringum Djemma el Fna er stórkostleg óreiða þar sem auðvelt er að gleyma sér. Það má búast við nokkuð ágengri sölumennsku því þetta er helsti ferðamannastaður Marokkó. Seinnipartinn verður ekið til Essaouira u.þ.b. 3 tíma ferð. Essaouira er gamall portúgalskur fiskimannabær á ströndinni. Þar er mun rólegra andrúmsloft, gaman að ganga meðfram ströndinni og njóta sólarlagsins.
Gisting á góðu hóteli.
Morgunverður
Dagur 7
22. mars
Morguninn frjáls til að njóta lífsins í Essaouira. Hægt að versla og/eða skoða mannlíf og náttúru. Seinnipartinn verður haldið aftur til Marrakech til að gista síðustu nóttina.
Gisting á góðu hóteli.
Morgunverður.
Dagur 8
23. mars Páskadagur
Eftir morgunverð verður haldið á flugvöllinn í Marrakech og flogið til London. Þaðan heim með kvöldflugi.
